meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó

Snjór er frábær :D Ég er svo fegin að það sé loks kominn snjór í stað þessa leiðinda vatnsveðurs sem er búið að vera undanfarna daga. Það birtir allt til og andrúmsloftið verður ferskara með snjónum. Svo finnst krökkunum þetta frábært, hægt að fara út að renna sér á snjóþotu og gera engla í snjónum og fleira skemmtilegt. Ég hlusta ekki á bull um að það þurfi að skafa og að það sé verra að keyra í snjónum. Bara vera með góða sköfu og góð dekk, og klæða sig vel ;) Þá er þetta bara gaman. Svo verður líka svo jólalegt og maður fer bara að komast í jólaskap :D

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, hæ!

Nú er bara komin rigning og rok! En það getur líka verið gaman í svoleiðis veðri ef maður er rétt klæddur. Ég er viss um að snjórinn kemur brátt aftur og spái því að jólin verði hvít!

Kær kveðja,

amma :-)

Dísa amma (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband